ég ætla að blogga reglulegar..
finnst ég verða að vera í sambandi við vini nær og fjær..hef fengið of margar kvartanir um að blogga sjaldan..
ótrúlegt að sumarið skuli vera að skríða í burtu frá okkur án þess að skilja mikið eftir sig..svona er þetta bara og við siglum bara inn í gott haust..ekki satt? megum ekki láta veðrið hafa áhrif á líf okkar og gleði..tökum við hverjum degi sem gjöf frá guði..dýrmætan og mikilvægan..hugsum hvað við getum gert við þennan dag sem skiptir máli..ekki bara fyrir OKKUR sjálf..það er svo margt annað en VIÐ í lífinu..
ég hef verið að hugsa um hraða lífsins..hraðann á öllu í kringum okkur..við erum að reyna að gera allt sem við HÖLDUM að við þurfum að gera..og svo eru kannski eru mikilvægari hlutir sem við erum ekki að rækta og eru meira virði en það sem við erum að hlaupa á eftir..
ætla að skrifa lista fyrir mig..þú mátt alveg lesa hann..
1. guð..gef ég honum tíma..er ég að hlusta á hann daglega..hlýddi ég því síðasta sem hann sagði mér..leyfi ég honum að opinbera orðið sitt fyrir mér daglega..
2. maki minn..segi ég honum nógu oft hversu mikils virði hann er mér..segi ég nógu oft ég elska þig..finnur hann að ég vil eyða tíma með honum..
3. sonur minn barnabörnin og tengdadóttir..hvað skil ég eftir í huga þeirra þegar þau ganga inn í framtíðina..eiga þau góðar minningar um um tíma sem ég eyddi með þeim..heyra þau mig segja að ég elski þau oft og mörgum sinnum..man ég eftir að sinna þeirra þörfum..hverjar eru þessar þarfir?
4. fjölskylda mín..þau hafa mikið að gefa mér..ég þarf að njóta samvista við þau og meðtaka þeirra gjafir..og ég þarf að sjá hvernig ég get blessað þau..
5. vinnustaðurinn: skil ég fólk eftir með hugsanir um að ég standi mig vel..eða að ég sé löt..er ég samvinnþýð..hjálpleg..skapa ég gott eða vont andrúmsloft á staðnum..
6. nágrannar mínir..hvernig sjá þeir mig og mína fjölskyldu..er ég vitnisburður fyrir þeim..er ég notaleg í samskiptum við þá..sýni ég þeim áhuga..
7. vinir mínir..rækta ég þá nógu vel..hvers virði eru þeir mér..sýni ég það í orði og verki..er ég til staðar þegar þeir þurfa á mér að halda..er ég of upptekin til að sinna þeim..
fyrir mér eru þetta spurningar sem ég VERÐ að athuga með stuttu millibili..áreitið í kringum mig er svo mikið..ég VERÐ að sortera úr hvað er mikilvægast..og ég sé strax hluti á þessum lista sem þarf að laga..
tíminn líður og ekki bíður..skiljum eftir okkur eitthvað sem skiptir máli..gerum okkur grein fyrir að við höfum ekki eilífiðina hér á jörðunni og það eru vissir hlutir sem við þurfum að sinna á meðan við erum hér..vissir hlutir sem við erum ábyrg fyrir frammi fyrir guði og mönnum..getum ekki kennt neinum öðrum um ef þeir gerast ekki..eða ef við höfum gert eitthvað sem við þurfum að leiðrétta..ekki er það minna mikilvægt..
kannski er þetta leiðindarlestur fyrir þig.. enég þurfti að koma þessu frá mér..:)
það er rigning úti..nýtum okkur það!
Posted at Thursday, August 10, 2006 by
nyjabrum
Permalink